Saturday, January 24, 2015

Rúgbrauðsuppskriftir

Seytt rúgbrauð

Íslendingar borða talsvert mikið af rúgbrauði segir Kristín Gestsdóttir , en henni finnst seyddu brauðin oft of sæt, einkum þau heimabökuðu. 

HÉR áður fyrr var lítill eða enginn sykur eða önnur sætuefni sett í seydd rúgbrauð, enda verða seydd brauð sæt án þess að sætuefni séu sett í þau. Þegar rúgbrauð er bakað við lágan hita í langan tíma brotnar sterkja kornsins niður og sykur myndast. Hliðstætt því sem gerist í eplum sem geymd eru við of hátt hitastig, þau verða mjölmikil og sæt. Sama gerist með kartöflur sem eru geymdar við of lágt hitastig. Við könnumst mörg við það að ef hitinn í kartöflugeymslunni fer niður undir frostmark verða kartöflurnar sætar. Áður en Íslendingar fengu bakarofna voru bökuð pottbrauð við glæður á hlóðum þegar hinn eiginlegi eldur var kulnaður og glóðin sat eftir, en mór og svarð var sett yfir til að halda hitanum, sem mátti ekki verða of mikill. Potti var hvolft yfir brauðið í bakstrinum og þannig er nafnið til komið. Brauðið var bakað að afliðnum degi þegar eldamennsku var lokið og var það tilbúið að morgni áður en skarað var í eldinn og hann glæddur á ný.

Auðvelt er að baka seydd rúgbrauð en það tekur langan tíma, þ.e. um hálfan sólarhring. Það er bakað við lágan hita í lokuðu íláti, t.d. góðri dós, mjólkurfernum eða bökunarpotti, ég nota ferkantaða glæra skál með loki, þá er auðveldlega hægt að fylgjast með bakstrinum. Nú þegar þorri er á næsta leiti getur verið gott að eiga rúgbrauð í frysti og borða með þorramatnum.

Format fyrir uppskriftir Rúgbrauð með hveiti og sírópi

8 bollar rúgmjöl

4 bollar hveiti

5 tsk. matarsódi

7 tsk. salt

1 dl síróp

1 lítri súrmjólk

1. Setjið rúgmjöl, hveiti, matarsóda og salt í skál.

2. Penslið desilítramál með matarolíu og hellið sírópi í það og setjið saman við mjölið. Olían varnar því að sírópið festist við málið. Setjið súrmjólk út í og hrærið saman. Best er að nota hrærivél, en deigið á að vera það lint að hægt sé að taka það í sleif.

3. Smyrjið fimm mjólkurfernur, skiptið deiginu jafnt í þær. Klippið álpappír og þrýstið þétt ofan á deigið, gott bil á að vera ofan á. Lokið fernunum og bakið brauðin í blástursofni við 95­100 C í um 8 klst. en í ofni án blásturs við 100­105 C.

Athugið: Gott er að setja örlítið vatn í lítið álmót eða annað létt ílát og leggja ofan á deigið. Gufan frá vatninu varnar því að brauðið myndi harða skorpu. Þetta getur verið svolítið erfitt ef brauðin eru bökuð í mjólkurfernu, en þá má setja skál með vatni á botn bakarofnsins.

Rúgbrauð úr rúgmjöli með eða án sykurs

1 kg rúgmjöl

2 msk. þurrger

2 tsk. salt

8 dl fingurvolgt vatn úr krananum

2 msk. púðursykur, ef ykkur hentar

1. Setjið rúgmjöl, þurrger, salt og púðursykur ef þið notið hann í skál og blandið saman.

2. Setjið fingurvolgt vatn út í og hrærið eða hnoðið deig.

3. Smyrjið það ílát sem þið ætlið að baka í, setjið deigið í það, fyllið að . Þrýstið vel niður og leggið álpappír ofan á.

4. Bakið við 100­105 í ofni án blásturs, en í blástursofni við 95- 100 . Baksturstími 14 klst.

úr Morgunblaði.



image
Þetta er langbesta rúgbrauðið sem ég hef smakkað. Fékk þessa uppskrift frá henni Fríðu vinkonu minni sem kemur oft og heimsækir mig í vinnuna. Það jafnast ekkert á við svona eðal íslenskt seytt rúgbrauð, hvort sem það er með fiskréttinum eða með einhverju eðal áleggi á þá er svo gott að eiga þetta geggjað heimagerða rúgbrauð.
460 gr rúgmjöl
260 gr heilhveiti
1 ltr súrmjólk
400 gr síróp
3 tsk salt
3 tsk matarsódi
Blandið öllu saman í skál og hrærið vel saman. Þið þurfið síðan pott sem er 3 lítrar og setjið bökunarpappír í botninn, hellið síðan blöndunni í pottinn. Verið búin að forhita ofninn í 90°C og passið upp á að potturinn sem þið notið sé með þéttu og góðu loki. Setjð pottinn í ofninn og bakið í 12 klukkutíma. Ég geri þetta yfirleitt að kvöldi til og læt þetta bakast yfir nóttina, þá er komin ilmandi rúgbrauðslykt um morguninn.
af  http://loly.is


Uppskrift Kristrúnar:
4 bollar rúgmjöl, 2 bollar heilhveiti eda likjandi mjöl, 4 bollar súrmjolk, 1 1/2 bolli sýróp (500gr) 3tsk matarsódi (natron), 3-4 tesk salt. Best ad nota mjólkurfernur eða álíka fernur. Hálfylla þær og loka yfir með álpappír. Bakað i ofni i ca 10-12 tima við 100-110 °C (212-230 Farenheit). Hafa fernurnar standandi. Ef hrært og skellt í ofn að kvöldi, tilbúið þá að morgni. Gott ad frysta. 
Ef ekki fæst súrmjólk má nota Butter Milk (sem reyndar er aðeins þynnri) eða hreint jógúrt, sem er þá þykkari og ég hef þynnt það þá svolítið út með mjólk. Deigið á að vera töluvert þykkt og klístrað og hanga á sleifinni, ekki renna, þá verður þetta of þunnt, en passa að hafa ekki of þurrt heldur. Lenti í því fyrst að hafa þetta of þunnt þar sem buttermilk og maple sýrópið var töluvert þynnra en súrmjólk og venjulega enska sýrópið.

Skúffukaka


P1120223
Öll matarblogg verða að hafa uppskrift af skúffuköku ekki satt? Þegar ég var lítil var ég oft í heimsókn hjá vinkonu minni og þar var alltaf til skúffukaka sem við fengum sneið af í kaffitímanum, oftar en ekki með smá þeyttum rjóma. Þessi skúffukaka var alltaf rosalega góð og eftir að ég flutti að heiman og fór að baka sjálf bað ég vinkonu mína um að fá uppskriftina hjá mömmu sinni. Það var auðsótt mál og síðan hefur kakan verið bökuð í ófá skipti, bæði hversdags og í veislur.
Kakan er mjög einföld, bragðgóð og alltaf mjúk og æðisleg. Ég held ég geti fullyrt að það muni allir elska þessa köku!
Skúffukakan frá Önnu
½ bolli brætt smjör(líki)
1/3 bolli heitt vatn
2 stk egg
1 bolli súrmjólk
3 bollar hveiti
2 bollar sykur
½ bolli kakó
1 tsk negull
1 tsk kanell
1 tsk engifer
1 tsk natron
1 tsk  lyftiduft
½ tsk salt
Öllu blandað saman og hrært, ekki hræra mjög lengi, bara þangað til allt er vel blandað saman og hellt í ofnskúffu. Bakað við 170° m/blæstri í 10-15 mín eða þar til endarnir byrja að losna frá forminu.
P1120219
Ég geri mismunandi krem í hvert skipti, það fer eftir því hvað er til, hvað mig langar og hversu sparileg kakan á að vera. Þetta krem er alltaf gott og er frekar sparilegt.
Gott súkkulaðikrem
150 g smjör
2 eggjarauður
100 g flórsykur
125 g suðusúkkulaði brætt
Þeytið smjörið þar til það verður létt og ljóst, bætið rauðunum út í einni og einni í einu, hrærið vel á milli. Setjið flórsykurinn út í og hrærið mjög vel. Bætið bræddu kældu súkkulaðinu út í og hrærið saman.
P1120298
Tekið af https://kruderiogkjanabangsar.wordpress.com

Wednesday, December 17, 2014

Jólabrauðið hennar mömmu (stollen)

Það eru nokkur ár síðan mamma fór að baka jólabrauð byggt á þýskum stollenuppskriftum. Það sló strax í gegn á heimilinu og er fyrir löngu orðið algjörlega ómissandi hluti af jólunum hjá mér. Mig langar þess vegna að gefa ykkur uppskriftina. Myndir og uppskrift eru frá mömmu (orðalag og allt, viðbætur frá mér eru skáletraðar). Uppskriftin gerir eitt stórt brauð eins og á neðstu myndinni eða tvö eins og í formunum.
Jólabrauð/stollen
2 dl mjólk
1 dl mjúkt smjör
1 dl sykur
7 dl hveiti
3 ½ tsk ger
1-3 tsk kanell (má sleppa, mér finnst ekki mega sleppa því en ég elska kanel ;))
Hnoðað og hefað í brauðvélinni. (brauðvél er alls ekki nauðsynleg, ef þið eigið ekki svoleiðis þá hnoðið þið bara í hrærivél eða höndunum og látið hefast eins og venjulegt gerdeig, mamma notar bara brauðvélina í allt svona, sem er mjög sniðugt ef þið eigið brauðvél)
Takið úr vélinni og hnoðið saman við eða fletja fyrst út og strá þessu yfir:
3 dl rúsinur (mömmu finnst þær vondar í kökum og notar kúrennur í staðinn, það er mjög gott)
2 dl súkkat
1 dl smátt skorin kirsuber (kokteilber)
1 msk raspaður appelsínu- eða sítrónubörkur
DSC00299

Brjótið deigið saman eftir smekk, gerið djúpa skoru í miðjuna og þrýstið marsipanlengju vel ofan í, líka er hægt að leggja marsipanið inn í og vefja deiginu utan um. Látið hefast í ca 30 mín (s.s hefast aftur)Mamma notar bara það marsipan sem er til hverju sinni, núna var það kransakökumarsipan, stundum notar hún odense ren rå. Þið notið það sem ykkur finnst best. Magnið fer eftir smekk, hún gerir fingurþykkar lengjur. Það má nota meira eða minna eða jafnvel sleppa því, ég mæli hins vegar alls ekki með því að sleppa, notið frekar meira ef þið borðið marsipan á annað borð!
DSC00303
Bakað við 180-200° í amk. 30 mínútur, best er stinga í brauðið til að athuga það, mér finnst yfirleitt þurfa lengri tíma en þetta ef brauðið á ekki að vera klesst. Meðan brauðið er enn volgt má smyrja það með smjöri og strá flórsykri yfir.
DSC00306
DSC00307
Ath. Eftir hrun urðu súkkat og kirsuber óheyrilega dýr svo þá varð að finna aðrar leiðir. Þurrkaðar aprikósur og döðlur eru góðar í staðinn, sumir nota líka súkkulaði (það er geðveikt gott þegar hún setur súkkulaði).
Efra brauðið er án kanils neðra er með kanil, þið sjáið að neðra er aðeins dekkra.

DSC00310
DSC00323
Fundið á http://kruderiogkjanabangsar.wordpress.com.

Monday, December 15, 2014

The Perfect Gingerbread Cookie Recipe

Excellent for a Gingerbread House.
(Danish Recipe) 

150 grams brown sugar = (3/4 cup packed) 
250 grams pancake syrup = (3/4 cup) 
1 tsp ginger 
2 tsp cinnamon 
1/2 tsp cloves 
2 tsp baking soda 
150 grams margarine or butter = (1 stick + 2 tbsp)
1 egg 
500 grams flour = (4 cups)

 ---------------------------- 

Method: In a large saucepan, bring brown sugar and syrup to boil. Take off heat and add the soda and stir well. This will make the mixture BUBBLE a LOT so be careful to use a large saucepan. Add butter and stir until butter is melted. Add egg and stir well. 

Add spices to the flour and mix; add flour to the syrup/sugar/egg/butter mixture in the saucepan. Mix well, turn onto floured countertop and knead. You may need to add more flour. The dough is now ready to roll and cut out cookies. 

Note: Do *NOT* refrigerate the dough - it will be impossible to properly roll it. 

shared at the Íslendingar í Ameríku Facebook page

Tuesday, December 31, 2013

Friday, October 11, 2013

Banana Muffins


(Original recipe makes 12 muffins, or 48 mini muffins)

Ingredients

  • 1 1/2 cups all-purpose flour
  • 1 teaspoon baking powder
  • 1 teaspoon baking soda
  • 1/2 teaspoon salt
  • 3 large bananas, mashed
  • 3/4 cup white sugar
  • 1 egg
  • 1/3 cup butter, melted



Directions

  1. Preheat oven to 350 degrees F (175 degrees C). Coat muffin pans with non-stick spray, or use paper liners. Sift together the flour, baking powder, baking soda, and salt; set aside.
  2. Combine bananas, sugar, egg, and melted butter in a large bowl. Fold in flour mixture, and mix until smooth. Scoop into muffin pans.
  3. Bake in preheated oven. Bake mini muffins for 10 to 15 minutes, and large muffins for 25 to 30 minutes. Muffins will spring back when lightly tapped.


Sunday, July 7, 2013

Kókoskúlur

100 gr. smjör 1. dl. sykur 3. dl. haframjöl 2. msk. kakó 1. tsk. vanilludropar Kókosmjöl til að dýfa kúlunum í