Kotasælupönnukökur (uppskrift úr The Weelicious Cookbok) – uppskriftin gefur um 18 litlar pönnukökur
- 3 egg
- 1 bolli kotasæla
- 1 tsk vanilludropar
- 2 msk hunang eða agave síróp
- ½ bolli hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- ¼ tsk salt
- smjör, olía eða olíusprey
Setjið fyrstu 4 hráefnin í skál og hrærið þeim saman. Bætið þurrefnunum saman við og hrærið saman.
Hitið pönnu við miðlungsháan hita og setjið smá af olíu eða smjöri á pönnuna. Setjið um 1 msk af deiginu á pönnuna fyrir hverja pönnuköku. Steikið í 2 mínútur á hvorri hlið, eða þar til pönnukakan er gyllt á lit og steikt í gegn.
No comments:
Post a Comment