Thursday, July 16, 2015

Frosin ostakaka með Dumle karmellukremi og makkarónubotni

IMG_9229
Frosin ostaterta með karmellukremi
Botn
130 g makkarónukökur
100 g smjör , brætt
Fylling
300 g rjómaostur
130 g flórsykur
1 tsk vanilludropar
5 dl rjómi þeyttur
Karmellukrem
150 g sýrður rjómi
200 g Dumle karmellur

  • Blandið smjöri og muldum makkarónum vel saman. Setjið í formið og breiðið varlega úr blöndunni (ekki þrýsta mjög fast niður).
  • Hrærið rjómaost, flórsykur og vanilludropa vel saman og blandið síðan þeyttum rjóma saman við. Hellið blöndunni ofan á makkarónubotninn og sléttið vel úr.
  • Brærið sýrða rjómann og Dumle karmellurnar varlega í vatnsbaði. Kælið karmellusósuna og hellið síðan yfir blönduna í forminu. Frystið.
  • Berið kökuna fram hálffrosna með berjum og/eða berjasósu með.
  • Af GulurRauðurGrænn&salt